Davíð Helgason, einn stofnenda hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Software, seldi hlutabréf í félaginu fyrir tæplega 6,8 milljónir dala, eða sem nemur ríflega 850 milljónum króna, 5. og 6. júní síðastliðinn. Davíð seldi alls 263 þúsund hluti á genginu 25,7 dali á hlut.

Þetta er önnur sölulota Davíðs á hlutabréfum í Unity í ár. Hann seldi í félaginu fyrir samtals 7,6 milljónir dala frá 21. til 28. febrúar, eða fyrir tæplega einn milljarð króna.

Samtals hefur Davíð, sem situr í stjórn Unity, selt hlutabréf í félaginu fyrir 14,4 milljónir dala eða um 1,8 milljarða króna í ár.

Með ofangreindri sölu er heildarsöluandvirði Davíðs í Unity frá ársbyrjun 2021 komið upp í 198 milljónir dala samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins. Það samsvarar um 26,8 milljörðum króna miðað við meðalgengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadalnum síðastliðin fjögur ár.

Davíð á nú tæplega 7,5 milljónir hluta, eða 1,80% eignarhlut, í Unity. Eignarhlutur hans er um 177,2 milljónir dala að markaðsvirði, eða sem nemur um 22,2 milljörðum króna.