Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, tilkynnti um tvöleytið í dag að hún muni gefa kost á sér í varaformannsembætti Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem fer fram næstu helgi, 28. febrúar – 2. mars.
Hún er annar frambjóðandinn til að gefa kost á sér í varaformannsembættið en Jens Garðar Helgason, þingmaður og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, tilkynnti um helgina að hann myndi gefa kost á sér.
„Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum“
Diljá Mist tilkynnti framboð sitt í myndbandi sem birt var á samfélagsmiðlum hennar í dag. Þá hefur hún boðað stuðningsmenn sína til fundar við sig í Sykursalnum í Grósku í kvöld klukkan 20:00 til að fagna framboðinu og hita upp fyrir komandi landsfund.
„Grunngildi Sjálfstæðisflokksins – frelsi, samkennd og sköpunarkraftur – hafa gert Ísland að því landi sem við elskum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum. Við þurfum að sjá til þess að þessi gildi haldi áfram að skapa tækifæri og samfélag þar sem allir geta blómstrað,“ segir Diljá Mist í myndbandinu.
Þá segir hún jafnframt að hún þekki flokkinn inn og út og vilji leggja sitt af mörkum til að efla starfið, hlusta á raddir flokksmanna og tryggja að Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram burðarás í íslensku samfélagi.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið afl frelsis og framfara – nú brettum við upp ermar og tryggjum að svo verði áfram!“
Diljá Mist hefur setið á Alþingi síðan 2021 og á þeim tíma gegnt stöðu formanns efnahags- og viðskiptanefndar sem og utanríkismálanefndar Alþingis.
Diljá Mist hefur m.a. lagt fram frumvörp á þingi um að draga úr sérréttindum opinberra starfsmanna á vinnumarkaði, afnema jafnlaunavottun og lækka styrki til stjórnmálaflokka, auk þingsályktunartillagna um aukna þjónustu til að mæta vímuefnavanda, þjóðarmorð í Úkraínu á árunum 1932-1933 og bætur vegna tvísköttunar lífeyrisgreiðslna.
Diljá Mist lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og LLM gráðu í alþjóðlegum umhverfis- og auðlindarétti frá sama skóla. Þá lauk hún stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands.
Diljá Mist er gift Róberti Benedikt Róbertssyni, fjármálastjóra, en saman eiga þau tvö börn, Jökul Róbert og Susie Rut. Foreldrar Diljár eru þau Einar S. Hálfdánarson, hæstaréttarlögmaður og endurskoðandi og Regína G. Pálsdóttir, sálfræðingur og uppeldisfræðingur.