Þýska flugfélagið Discover Airlines, dótturfélag Lufthansa, hefur ákveðið að fljúga milli München og Keflavíkurflugvallar allt árið um kring. Þetta var tilkynnt í dag en áður hafði félagið boðað flug til og frá Keflavík yfir sumartímann.
Fyrsta flug félagsins verður 3. apríl 2025 og verður flogið þrisvar sinnum í viku yfir sumartímann og tvisvar í viku út vetrartímabilið.
Lufthansa flug áður á milli München og Keflavíkurflugvallar, en Discover Airlines, tekur yfir flugleiðina. Discover býður sínum farþegum upp á að hægt verði að tengja áfram til enn fleiri áfangastaða þeirra og Lufthansa í gegnum München.
„Það er okkur sönn ánægja að bjóða flugfélagið Discover Airlines velkomið í flugvallarsamfélagið á Keflavíkurflugvelli. Þessar fréttir koma í kjölfar ákvörðunar easyJet að bæta við áfangastöðum næsta sumar og pólska flugfélagsins LOT að hefja í fyrsta sinn flug milli Varsjár og KEF,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar.