Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi ákvörðun ÁTVR að taka úr sölu tvær bjórtegundir undir vörumerkinu Faxe frá innflutningsfyrirtækinu Dista. ÁTVR ber að greiða Dista málskostnað að fjárhæð 1,75 milljónir króna. Taldi héraðsdómur að ákvarðanir ÁTVR hefðu falið sér brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar.
Viðskiptablaðið sagði frá stefnu Dista í lok síðasta ár. ÁTVR hafði ákveðið að fella bjórtegundirnar Faxe IPE og Faxe Witbier úr vöruúrvali verslananna og hætta innkaupum á þeim þar sem framlegð þeirra væri of lítil.
Sjá einnig: Telja ÁTVR óheimilt að miða við framlegð
Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að ÁTVR skuli gæta jafnræðis við val á vöru og ákvörðun um sölu og dreifingu áfengis, en ÁTVR er falið að ákveða árangursviðmið söluflokka og birta á vefsvæði sínu.
Vinsældir vara ráða m.a. hvar þær eru boðnar til sölu og hvar ekki, en mismunandi vöruframboð er í mismunandi verslunum. Í reglugerðinni segir að framlegð, mismunur á innkaups- og söluverði að frádregnum virðisaukaskatti, síðastliðna tólf mánuði skuli ráða forgangi vöru til dreifingar. Til að bjór geti komist í svokallaðan kjarnaflokk þarf hann að falla í flokk þeirra fimmtíu bjóra sem besta hafa framlegðina.
Faxe bjórtegundirnar tvær náðu ekki í kjarnaflokkinn á grunni nefndar vöruvalsreglna þrátt fyrir að fleiri lítrar af þeim hafi selst en í tilfelli annarra bjóra í sama vöruflokki. Að mati Dista stóðust ákvarðanir ÁTVR ekki lögmætisregluna, um að ákvarðanir og aðgerðir stjórnvalda verði jafnt að eiga sér stoð í lögum sem og að vera í samræmi við þau, og lagaáskilnaðarreglur stjórnarskrárinnar. Atvinnufrelsið sé verndað í stjórnarskrá og fyrirkomulega sölu áfengis sé inngrip í það frelsi.