Bókunarvélin Dohop Connect, sem hefur verið í þróun hjá Dohop síðustu ár, hefur nú fengið nýtt nafn og kallast WAYA. Í tilkynningu segir að bókanir á síðunni hafi verið 130 þúsund talsins á síðasta ári miðað við 1.500 árið 2022.
WAYA sérhæfir sig í tengiflugum og er einnig hægt að nota síðuna til að finna ódýrustu flugin hverju sinni.
Í dag eru um 140 milljónir tenginga í boði hjá WAYA og fjöldi flugvallapara er rúm 186 þúsund. WAYA starfar þá með rúmlega 90 flugfélögum um allan heim en stærstu markaðir þess eru Evrópa, Norður-Ameríka og Mið-Austurlönd.
„Með WAYA sköpum við líka fleiri leiðir fyrir flugfélög til að auka sætanýtingu og styrkjum samband okkar við þau. Kosturinn við að þróa WAYA fyrir Dohop er að við ráðum yfir síðunni sjálf og getum því prófað okkur áfram með nýja hluti. Þegar hlutirnir virka vel á WAYA getum við tekið þá áfram með flugfélögunum sem við erum í samstarfi við,” segir Katrín Atladóttir, tekjustjóri hjá Dohop.“