Nýsköpunarfyrirtæki á sviði loftslags- og orkumála hafa mörg neyðst til að draga saman seglin en ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að draga úr fjárveitingum auk stefnubreytinga þegar kemur að orkuiðnaðinum hafa haft gífurleg áhrif.

Wall Street Journal greinir frá því að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi boðað 3,7 milljarða dala niðurskurð á framlögum til orku- og loftslagsverkefna auk þess sem Repúblikanar á þinginu vilja draga til baka skattaívilnanir. Þá hafa tollar Trump haft mikil áhrif á kostnað við innflutning en orku- og loftslagsfyrirtæki hafa neyðst til að segja upp starfsfólki og jafnvel sótt um greiðslustöðvun vegna stöðunnar. Þá hefur hlutabréfaverð skráðra félaga hrunið.

Hagsmunaaðilar benda á að Bandaríkin muni missa samkeppnisforskot sitt á sviði endurnýjanlegrar orku en fjárveitingar og ívilnanir hafi meðal annars laðað að erlend fyrirtæki.