Hagfræðideild Landsbankans telur líklegt að ferðamenn hafi verið fleiri á fyrri hluta ársins en talning Ferðamálastofu gefur til kynna, eða talningin í fyrra hafi verið ofmetin. Þá gætu ferðir Íslendinga verið oftaldar, að því er segir í nýrri hagsjá bankans.
Færri ferðamenn hafa heimsótt Ísland það sem af er ári en á sama tíma í fyrra miðað við tölur Ferðamálastofu, eða um 721 þúsund á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við 750 þúsund á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir það hafi erlend kortavelta aukist og útflutningstekjur af ferðaþjónustu aukist milli ára.
„Við teljum ýmislegt benda til þess að erlendir ferðamenn hafi verið fleiri síðustu mánuði en talning Ferðamálastofu segir til um,“ segir hagfræðideild Landsbankans.
Bent er á að við mat á fjölda erlendra ferðamanna sem heimsækja landið byggir Ferðamálastofa annars vegar á gögnum Isavia um heildarfarþegafjölda um Keflavíkurflugvöll, og hins vegar á eigin mati á skiptingu farþega eftir þjóðernum. Mat á þjóðerni byggir á úrtakskönnunum sem eru gerðar reglulega yfir mánuðinn.
Landsbankinn segir að þar til nýlega hafi þessi aðferð reynst vel. Tölur um fjölda ferðamanna hafi alla jafna þróast við svipuðum hætti og aðrir mælikvarðar og því virst nokkuð réttar. Annað virðist uppi á teningnum núna.
Umferð um Keflavíkurflugvöll hafi ekki verið meiri frá árinu 2018 og talning vegagerðarinnar sýni að umferð um þjóðvegi landsins hafi aukist í öllum landshlutum, nema á Suðurlandi, á fyrstu mánuðum ársins. Þá jókst velta hjá fyrirtækjum í ferðaþjónustu raunvirði milli ára í janúar og febrúar samkvæmt VSK-skýrslum og gistinætur á gististöðum á Íslandi voru fleiri fyrstu fjóra mánuði ársins en á sama tíma í fyrra.
„Í ljósi þess að Íslendingar ferðast til útlanda sem aldrei fyrr er hálfólíklegt að þeir standi einnig fyrir fjölgun gistinótta og aukinni umferð hérlendis. Þessir mælikvarðar eru í takt við aukna erlenda kortaveltu og vöxt í útflutningstekjum samkvæmt þjóðhagsreikningum.
Því má telja líklegast að ferðamenn hafi verið fleiri á fyrri hluta ársins en talning Ferðamálastofu gefur til kynna, eða þá að í fyrra hafi þeir verið færri en talningin gaf til kynna.“
Ferðir Íslendinga oftaldar?
Sé fjöldi erlendra ferðamanna vantalinn, þá telur hagfræðideildin það að ferðir Íslendinga séu líklega otaldar.
Tæplega 68 þúsund Íslendingar fóru til útlanda í maí samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Samkvæmt þeim fjölgaði ferðum Íslendinga í maí um 25% milli ára og hafa utanlandsferðir Íslendinga aldrei verið fleiri í maímánuði. Í apríl slógu Íslendingar einnig met í fjölda utanlandsferða í einum mánuði, og það sem af er ári hafa utanlandsferðir Íslendinga verið um 29% fleiri en á sama tíma í fyrra.
„Þótt við teljum ekki ólíklegt að ferðum Íslendinga hafi fjölgað í takt við stóraukna kortaveltu Íslendinga erlendis, kann fjölgunin að vera minni en tölurnar gefa til kynna.“
Hagfræðideild Landsbankans segir heildarmyndina vera þá að ferðaþjónusta hafi vaxið fyrstu fimm mánuði ársins.