Hampiðjan hagnaðist um 2,8 milljónir evra, eða um 413 milljónir króna, á fyrsta ársfjórðungi, sem samsvarar 3,4% aukning frá sama tímabili í fyrra. Félagið birti uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag.
Rekstrartekjur Hampiðjunnar á fyrsta fjórðungi hækkuðu um 17,4% milli ára og námu 91,9 milljónum evra eða um 13,4 milljörðum króna.
EBITDA-hagnaður samstæðunnar jókst um 34,5% og nam 11,2 milljónum evra eða um 1,6 milljörðum króna. Fjármagnskostnaður og mikill gengismunur dró niður hagnað félagsins á fjórðungnum.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampijðunnar bendir á að hluti af aukinni veltu samstæðunnar er tilkominn vegna innkomu norska félagsins Fiizk sem varð hluti af samstæðunni frá 1. september 2024 og neta- og kaðlafyrirtækinu Kohinoor sem kemur inn í samstæðuuppgjörið frá 1. febrúar í ár.
Ef einungis eru tekin þau félög sem fyrir voru í samstæðunni þá var söluaukning þeirra 7,3%.
Loka Poldan í Póllandi
Hjörtur segir að árið í ár verði mikið umbreytingarár því verið sé að loka nokkrum starfstöðvum í Evrópu, flytja til framleiðslu á völdum vörum til Hampidjan Baltic í Litháen og framleiðslu á fiskeldiskvíum til Kohinoor á Indlandi og efla starfsemina þar ásamt því að byggja fyrsta hlutann af nýju verksmiðjuhúsnæði á iðnaðarsvæðinu Auric í indversku borginni Aurangabad.
„Hagræðingaraðgerðirnar byrja að skila sér í auknum mæli eftir því sem líður á árið og koma inn að mestu leyti á næsta ári.“
Í uppgjörstilkynningu Hampiðjunnar kemur fram að hafinn sé undirbúningur að lokun framleiðslufyrirtækisins Poldan í Póllandi, en þar starfa nú 48 manns. Verið er að ljúka samningum um starfslok 45 starfsmanna og er fyrirhugað að fyrirtækinu verði lokað í lok ágúst.
Fyrirhugað er að selja þessa verksmiðjubyggingu með skrifstofum sem 3.200 fermetrar ásamt 760 fermetra vöruhúsi og 9.425 fermetra landrými á næstu mánuðum.
Hluti af framleiðsluvélunum Poldan hefur verið fluttur til Hampidjan Baltic í Litháen og það sem eftir er verður fært á milli í sumar.