Norska fjármálafyrirtækið ECIT AS, móðurfélag ECIT Virtus ehf., hefur náð samkomulagi um kaup á 86,9-90,0% hlut í KPMG Bókað ehf., dótturfélags KPMG á Íslandi, auk möguleika á að eignast eftirstandandi hlutafé í félaginu.

KPMG vilji skerpa á þjónustuframboði sínu

KPMG ehf. mun eiga minnihluta í KPMG Bókað ehf. á móti ECIT eftir að viðskiptin verða frágengin. Greitt verður fyrir kaupverðið með reiðufé.

KPMG Bókað ehf. er bókhalds- og launaþjónusta KPMG á Íslandi. Starfsfólk Bókað telur um 80 manns og sinnir það þjónustu við um 2.000 fyrirtæki og stofnanir um land allt.

Engar breytingar eru fyrirhugaðar í mannahaldi eða starfsstöðvum Bókað né heldur í þjónustuþáttum gagnvart viðskiptavinum, að því er segir í sameiginlegri tilkynningu KPMG og ECIT.

Framkvæmdastjóri félagsins verður Birna Mjöll Rannversdóttir sem hefur verið sviðsstjóri bókhaldssviðs KPMG til fjölda ára og verið meðeigandi hjá KPMG frá árinu 2015.

„Það er mikilvægt fyrir okkur að geta boðið okkar viðskiptavinum bestu lausnir í bókhalds- og launaþjónustu sem völ er á og þar stendur ECIT AS vel að vígi. Við viljum skerpa á þjónustuframboði KPMG í samræmi við áherslur félagsins á alþjóðavettvangi á sviði endurskoðunar, reikningsskila, ráðgjafar, lögfræði- og skattaþjónustu. Við stefnum að því að sækja enn frekar fram á okkar sérsviði og það er mikilvægt að eiga í samstarfi við öflugt félag á sviði launavinnslu og bókhaldsþjónustu til að geta tryggt viðskiptavinum okkar áfram þjónustu á breiðum grunni,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KPMG.

Velta KPMG Bókað á reikningsárinu sem lauk 30. september síðastliðinn er áætluð um 1.350 milljónir króna. Það var fyrsta heila rekstrarár KPMG Bókað undir eigin kennitölu.

Starfsmenn ECIT á Íslandi verða um 110

ECIT gerir ráð fyrir að viðskiptin gangi í gegn í janúar næstkomandi. Í tilkynningu norska félagsins segir að viðskiptin séu háð niðurstöðu áreiðanleikakannana.

Starfsfólk ECIT á Íslandi mun samtals telja um 110 eftir að kaupin ganga í gegn.

ECIT AS segir að með kaupunum verði Bókað hluti af öflugu neti á sínu sérsviði en félagið veitir bókhalds- og launaþjónustu á öllum Norðurlöndunum auk nokkurra annarra landa. ECIT er með yfir 2.500 starfsmenn á yfir hundrað skrifstofum í tíu löndum

„Þessi kaup á Bókað styrkja enn frekar stöðu og þjónustu ECIT í bókhalds- og launaþjónustu á Íslandi. Það er með mikilli ánægju sem við bjóðum viðskiptavini og starfsfólk Bókað velkomin til ECIT,“ segir Peter Lauring, stofnandi og forstjóri ECIT AS.

Fyrir hönd ECIT AS annaðist Halldór Þorkelsson hjá Arcur ehf. ráðgjöf um viðskiptin og milligöngu vegna þeirra.

ECIT keypti 51% hlut í Virtus fjármálum, sem heitir í dag ECIT Virtus ehf., í mars 2023. Í lok síðasta árs var tilkynnt um að ECIT Virtus hefði gengið frá kaupum á rekstri Húnabókhalds ehf.

Í byrjun þessa ár tók ECIT Virtus yfir bókhalds- og launaþjónustu PwC í Reykjavík og voru starfsmenn félagsins í kjölfarið 30 talsins.

Fréttin var uppfærð eftir að KPMG og ECIT AS sendi frá sér sameiginlega tilkynningu. Fyrirsögn fréttinnar hefur einnig verið leiðrétt og árétta skal að ECIT AS, ekki ECIT Virtus, er að kaupa Bókað.