Samninganefnd Eflingar – stéttarfélags hefur vísað kjaradeilu félagsins við Reykjavíkurborg til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar sendi ríkissáttasemjara skriflega tilkynningu þess efnis í dag, 27. maí.

Í tilkynningu segir að Efling líti svo á að viðræður við Reykjavíkurborg hafi reynst árangurslausar en þær hafa staðið yfir síðan um miðjan apríl. Kjarasamningur Eflingar stéttarfélags og Reykjavíkurborgar rann út 1. apríl síðastliðinn.

„Við höfum átt fjölmarga fundi með samninganefnd Reykjavíkurborgar en viðræður mjakast lítið sem ekkert áfram. Það er afskaplega undarlegt að upplifa að þrátt fyrir að við höfum komið því skýrt áleiðis, m.a. í kröfugerðinni okkar, að við ætlum að fylgja launastefnunni sem að mótuð var í kjarasamningum á almenna markaðnum, er borgin áhugalítil um að ræða bráðnauðsynleg umbótamál fyrir ómissandi starfsfólk sitt. Hófstilltar launahækkanir virðast ekki hafa vakið löngun til að ganga hratt og örugglega frá samningum við okkur. Við vonum að með því að vísa deilunni fari viðræður að skila árangri,“ segir í tilkynningu.