Al­þjóða­gjald­eyris­sjóðurinn hefur lækkað hag­vaxtar­horfur konungs­ríkisins Sádí-Arabíu fyrir árið. Sam­kvæmt spá sjóðsins verður hag­vöxtur í Sádi-Arabíu í ár um 1,7% í stað 2,6% eins og áður var spáð.

Um er að ræða mestu lækkun á efna­hags­horfum meðal þeirra landa sem lúta reglu­bundinni út­tekt hjá sjóðnum.

Sam­kvæmt Bloom­berg gæti þetta haft nei­kvæð á­hrif á konungs­ríkið sem hefur verið að auka skuldir sínar til að fjár­magna draum­sýn krón­prinsins Mohammed Bin Sal­man um að gjör­breyta efna­hag landsins.

Í skýrslu AGS segir að sam­drátturinn komi al­farið til vegna á­kvörðunar konungs­ríkisins að draga úr olíu­fram­leiðslu en Sádi-Arabía hefur á­samt öðrum OPEC-ríkjum verið að skerða olíu­fram­leiðslu til að ýta heims­markaðs­verði á olíu upp á við.

Ný­verið á­kváðu OPEC-ríkin að halda á­fram að skerða fram­leiðsluna langt fram á næsta ár.

Mohammed al-Jada­an fjár­mála­ráð­herra Sádi Arabíu sagði ný­verið að halli ríkis­sjóðs, sem er um 2% af lands­fram­leiðslu, væri á­sættan­legur eins og staðan er núna. „Svo lengi sem hallinn er til­kominn vegna fram­sækinna verk­efna, þá held ég þetta sé já­kvætt,“ sagði Mohammed al-Jada­an í við­tali við CNBC á dögunum.

Hins vegar er Saudi Aramco ekki sama peninga­vélin og áður fyrir konungs­fjöl­skylduna.

Upp­haf­lega stóð til að selja hluti fyrir um 40 til 50 milljarða dali í olíu­fyrir­tækinu í ár en á endanum á­kvað fjöl­skyldan að selja 0,64% hlut á 11,2 milljarða.

Markaðs­virði 97% hlutar konungs­fjöl­skyldunnar er metið á 1,8 billjónir (e. trillion) dali en þar sem fé­lagið er skráð í kaup­höllina í Sádi-Arabíu hefur gengið illa að fá stóra fjár­festinga­sjóði til að fjár­festa í því.

Sádarnir sóttu sér ný­verið 11,2 milljarða Banda­ríkja­dali með hluta­fjár­út­boði í krúnu­djásni konungs­ríkisins, Saudi Aramco.

Sam­hliða því seldi þjóðar­sjóður Sáda hluta­bréf í banda­rískum fyrir­tækjum fyrir um 15 milljarða dali til að halda á­fram að fjár­magna draum­sýn MBS.

Í fyrra lagði Þjóðar­sjóður Sáda hinni svo­kölluðu Línu­borg til 48 milljarða dala, fjár­festi 100 milljörðum í ör­flögu­tækni og stofnaði nýtt flug­fé­lag, Ri­ya­dh Air, svo dæmi séu tekin.