Icelandair flutti 409 þúsund farþega í október­mánuði sem er um 12% fleiri farþegar en á sama tíma í fyrra.

Þar af voru 35% á leið til Ís­lands, 17% frá Ís­landi, 42% ferðuðust um Ís­land og 6% innan Ís­lands.

Sam­kvæmt Kaup­hallar­til­kynningu flug­félagsins hefur eftir­spurn eftir ferðum til Ís­lands aukist á nýjan leik eftir minni eftir­spurn mánuðina á undan.

Þá var sætanýting 84,6%, ein sú hæsta í október­mánuði.

Stund­vísi var 84,4% og jókst um 4,2 pró­sentu­stig á milli ára. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt yfir fjórar milljónir farþega, 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.

„Það er mjög ánægju­legt að sjá aukningu á ferðalögum til Ís­lands á ný og enn og aftur hvernig sveigjan­leikinn í leiða­kerfinu nýtist til þess að leggja áherslu á þá markaði þar sem eftir­spurn er mest hverju sinni. Að sama skapi er mikill kraftur í ferðalögum Ís­lendinga með Icelandair en 11% aukning var á markaðnum frá Ís­landi á milli ára,” segir Bogi Nils Boga­son, for­stjóri Icelandair.

Það sem af er ári hefur Icelandair flutt yfir fjórar milljónir farþega, 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.

„Stund­vísi og sætanýting er áfram mjög góð auk þess sem við­skipta­vinir halda áfram að gefa okkur háa ein­kunn í þjónustukönnunum. Sætanýting á Saga Premium var mjög góð í mánuðinum en varan hefur notið aukinna vinsælda að undan­förnu. Leigu­flugs­starf­semin hefur gengið mjög vel undan­farið og í október var 60% vöxtur í seldum blokktímum á milli ára, auk þess sem aukning var á tonn­kíló­metrum í frakt­starf­seminni í fyrsta sinn í nokkra mánuði,“ segir Bogi.