Leonind Radvins­ky hefur á­kveðið að greiða sér út 338 milljónir dala í arð úr fé­lagi sínu Fenix International sem er móður­fé­lag vef­síðunnar On­lyfans. Arð­greiðslan sam­svarar ríf­lega 45 milljörðum ís­lenskra króna.

Hagnaður Fenix International jókst í hálfan milljarð Banda­ríkja­dala í fyrra en sam­kvæmt upp­gjörinu eru nú um þrjár milljónir ein­stak­linga sem selja efni á On­lyfans. Not­endur eða eins og segir í upp­gjörinu „Fans“ eru orðnir 240 milljónir.

Stofnað af feðgum árið 2016

Radvisn­ky á allt hluta­fé Fenix en fé­lagið er skráð í Lundúnum. Sam­kvæmt BBC er per­sónu­legur auður hans metinn á 2 milljarða Banda­ríkja­dali.

Fenix hagnaðist um 525 milljónir banda­ríkja­dala í fyrra sem er hækkun úr 432 milljónum árið áður. Sam­svarar það um 70 milljörðum ís­lenskra króna.

On­lyFans var stofnað af feðgunum Guy og Tim Stokely árið 2016 en Radvins­ky keypti vef­síðuna af þeim feðgum árið 2018.