Samstæða Kynnisferða hagnaðist um 497 milljónir króna í fyrra, samanborið við 1.322 milljóna hagnað árið 2023.

Í skýrslu stjórnar segir að áframhaldandi hagræðingar og endurskipulagning á öllum sviðum hafi einkennt árið. Kynnisferðir eiga átta dótturfélög, þar af Sportköfunarskóla Íslands, sem félagið eignaðist að fullu árið 2024.

Lykiltölur / Kynnisferðir hf.

2024 2023
Rekstrartekjur 14.462 14.450
Eigið fé 7.211 7.168
Eignir 18.107 15.960
Hagnaður 497 1.322
- í milljónum króna

Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu.