Fjárfestingarsjóðurinn Inter Long Term Capital, sem er skráður í Lúxemborg, hefur eignast 10% hlut í Össuri. Sjóðurinn á nú um 42,23 milljónir hluta í Össuri sem eru hátt í 24 milljarðar íslenskra króna að markaðsvirði.

Þetta kemur fram í flöggunartilkynningu en sjóðurinn umræddi stækkaði hlut sinn í íslenska stoðtækjaframleiðandanum fyrir tæplega 190 milljónir íslenskra króna á fimmtudaginn síðasta.

Inter Long Term Capital fór yfir 5% flöggunarmörkin í Össuri í febrúar síðastliðnum þegar sjóðurinn eignaðist 6,5% hlut í félaginu.

Inter sjóðurinn er næst stærsti hluthafi Össurar, aðeins á eftir danska fjárfestingarsjóðnum William Demant Invest sem á ráðandi hlut í stoðtækjaframleiðandanum. Þá eiga danski lífeyrissjóðurinn ATP og Lífeyrissjóður verzlunarmanna yfir 5% hlut hvor.

Inter sjóðirnir eru reknir af Inter Fund Management sem heyrir undir Interogo Holding. Síðarnefnda félagið er í eigu sjálfseignarfélagsins Interogo Foundation sem á einnig Inter IKEA Group samstæðuna. Interogo Foundation var um tíma af stýrt af Ingvar Kamprad, stofnanda IKEA, og fjölskyldu hans.