Samkomulag hefur náðst um að Eignaumsjón hf. kaupi Fjöleignir ehf., húsfélagaþjónustu KRST lögmanna ehf. og taki við allri þjónustu við viðskiptavini. Eignaumsjón tekur formlega við rekstri Fjöleigna í byrjun júlí og kemur starfsfólk Fjöleigna þá til starfa á skrifstofu Eignaumsjónar að Suðurlandsbraut 30.
Aukin þörf fyrir sérhæfðari þjónustu
Jón Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri KRST lögmanna, segir í tilkynningu að það falli ekki að kjarnastarfsemi félagsins að eiga og reka húsfélagaþjónustu. Rekstur fjöleignarhúsa sé alltaf að verða flóknari og umfangsmeiri og að aukin þörf sé fyrir sérhæfingu sem stærri þjónustuaðili eigi betra með að veita.
„Það er góð lausn að okkar mati að Eignaumsjón, sem er öflugur aðili á þessum markaði, taki við keflinu til að tryggja að vel verði hugsað um viðskiptavini Fjöleigna og hagsmuni þeirra.“
Góð þjónusta og skilvirkar tæknilausnir
Eignaumsjón hefur verið leiðandi í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fjöleignarhúsa, allt frá því að félagið tók til starfa árið 2000. Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, segir að með kaupunum geti félagið mætt þörfum fasteignaeigenda enn betur.
„Við ætlum okkur að þróa þá þjónustu enn frekar til að mæta enn betur sívaxandi þörfum eigenda fasteigna með öruggri og góðri þjónustu.“