Hækkun á innlendum og erlendum hlutabréfamörkuðum vó þungt í myndarlegri aukningu heildareigna íslenskra lífeyrissjóða á þriðja ársfjórðungi.
Samkvæmt greiningardeild Íslandsbanka var þriðji ársfjórðungur afar hagfelldur fyrir eignasafn sjóðanna og stefnir í að raunávöxtun lífeyrissjóðanna verði í takti við meðalávöxtun undanfarins áratugar og yfir tryggingafræðilegu viðmiði þeirra.
Heildareignir íslenskra lífeyrissjóða námu 7.945,5 milljörðum í septemberlok samkvæmt nýbirtum tölum Seðlabankans. Samsvarar það um 176% af áætlaðri landsframleiðslu þessa árs, samkvæmt Íslandsbanka.
„Á þann mælikvarða standa fá lönd heims okkur á sporði en helst eru það Danmörk, Kanada, Holland og Sviss sem hafa úr álíka digrum sjóðum að spila fyrir núverandi og væntanlega lífeyrisþega,“ segir í greiningu bankans sem Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka skrifar.
Íslandsbanki bendir á að innflæði inn í íslenska lífeyrissjóði vegna iðgjaldagreiðslna sé enn talsvert meira á heildina litið en sem nemur útflæði vegna lífeyrisgreiðslna og rekstrarkostnaðar.
Hreint innflæði skýrir þó einungis lítinn hluta þeirrar 649 milljarða króna aukningar sem orðið hefur á heildareignum sjóðanna frá ársbyrjun.
„Við áætlum lauslega, byggt á þróun síðustu ára, að hreint innflæði vegna iðgjalda umfram lífeyrisgreiðslur og kostnað hafi numið u.þ.b. 70 ma.kr. Eftir standa þá í kringum 580 ma.kr. sem skýra má með verðhækkun og ávöxtun af eignum þeirra,“ skrifar Jón Bjarki.
Bróðurparturinn af eignaaukningunni það sem af er ári er í erlendum eignum sjóðanna.
Slíkar eignir uxu um ríflega 400 milljarða á fyrstu þremur fjórðungum ársins. Í septemberlok námu þær jafnvirði 3.143 milljarða, sem svarar til 39,6% af heildareignum sjóðanna.
Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna námu 51 milljarði króna á fyrstu 8 mánuðum þessa árs og jafngildir það 17 milljarða samdrætti frá sama tíma 2023.
„Að því gefnu að slík gjaldeyriskaup hafi ekki tekið verulegt stökk í september má álykta að um það bil 85% af þessari eignaukningu sé vegna verðhækkunar og ávöxtunar af erlendum eignum. Í því sambandi er nærtækt að horfa til alþjóðlegrar þróunar á hlutabréfaverði, enda er langstærstur hluti erlendra eigna lífeyrissjóðanna í erlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum í verðbréfasjóðum,” skrifar Jón Bjarki.
Á fyrstu þremur fjórðungum ársins hækkaði MSCI heimsvísitala hlutabréfa til að mynda um 17% en verðmæti erlendu eignanna jókst á sama tíma um tæp 15%.
„Að teknu tilliti til líklegra eignakaupa og gengishreyfinga krónu telst okkur til að bein og óbein ávöxtun erlendu eignanna gæti hafa verið á bilinu 12-13% á tímabilinu.”
Þá tók innlendi hlutabréfamarkaðurinn við sér á þriðja ársfjórðungi eftir að hafa verið í lægð á fyrri árshelmingi.
Miðað við OMXI15 vísitöluna hækkuðu innlend hlutabréf um tæp 7% á fjórðungnum eftir 6% lækkun frá ársbyrjun til júníloka.
Á sama tíma jókst eign sjóðanna í innlendum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum um 77 milljarða sem samsvarar tæplega 8% aukningu. Námu slíkar eignir alls 1.090 milljörðum króna í septemberlok og voru þar með 13,7% af heildareignum.