Eik fasteignafélagi hefur borist óskuldbindandi tilboð í Glerártorg á Akureyri. Eik greinir frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar. Eik nýtur aðstoðar Arctica Finance hf. í ferlinu.

„Lagt hefur verið mat á tilboðin og ákveðið að bjóða tilteknum aðilum að halda áfram í ferlinu, en ekki liggur fyrir nein vissa á þessu stigi hvort framangreint ferli muni leiða til skuldbindandi tilboða í Glerártorg, sem gæti lokið með sölu á fasteigninni,“ segir í tilkynningunni.

Eik hyggst upplýsa um framvindu ferlisins um leið og ástæða er til í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins.

Félagið bendir á að samkvæmt upplýsingastefnu þess stefnir félagið á að birta opinberlega upplýsingar um það ef stjórnendur vænta áhrifa á ársgrundvelli sem nema 3% eða meira á rekstrarhagnað (EBITDA) eða stærð fasteignasafns félagsins.

Eik eignaðist Glerártorg árið 2014 þegar fasteignafélagið tók yfir rekstur og keypti EF1 hf., sem var í eigu SMI ehf. Í eignasafni EF1 voru m.a. Turninn að Smáratorgi 3 og Smáratorg 1 í Kópavogi og verslunarmiðstöðin Glerártorg á Akureyri.