Eimskip hefur tilkynnt um að frá og með 1. september muni félagið bæta við vikulegum viðkomum í Rotterdam í Hollandi á Gulu siglingaleiðinni.
Með breytingunni opnast bein tenging frá Vestmannaeyjum og Tórshavn í Færeyjum til Rotterdam, auk þess sem Reyðarfjörður tengist í gegnum umlestun í Færeyjum.
Siglingatíminn til Rotterdam frá Austurlandi og Vestmannaeyjum er um fjórir dagar, sem Eimskip segir m.a. tryggja afhendingu á mörkuðum í Frakklandi og Hollandi á þriðjudögum.
Flutningafélagið segir nýju tenginguna efla útflutning íslensks sjávarfangs, styðja laxeldi og bæta þjónustu við frystar og saltaðar afurðir.
„Viðbrögð viðskiptavina okkar hafa verið bæði góð og sterk, þeir sjá mikla möguleika í þessari tengingu sem styrkir ferskfisksflutninga til meginlands Evrópu. Þetta er jákvætt og framsækið skref í þróun þjónustu Eimskips og eflingu tengsla við evrópska markaði í gegnum okkar áreiðanlega siglingarkerfi,” segir Björn Einarsson, framkvæmdastjóri Sölu og viðskiptastýringar hjá Eimskip.
Skrifstofa Eimskip í Rotterdam hefur starfað frá árinu 1985.
„Með þessari viðbót á Gulu leiðinni geta viðskiptavinir, eftir sem áður, treyst á framúrskarandi þjónustu og enn skilvirkari tengingar við lykilmarkaði á meginlandi Evrópu,“ segir Björn.