Nasdaq tilkynnti í dag um niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 15 Úrvalsvísitölunni. Breytingin tekur gildi þriðjudaginn 1. júlí næstkomandi.
Eimskip og Skagi, móðurfélag VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa, koma ný inn í vísitöluna. Eimskip verður aftur hluti af vísitölunni eftir að hafa dottið út í byrjun þessa árs.
Kaldalón og Síldarvinnslan fara á móti úr vísitölunni. Fasteignafélagið Kaldalón var tekið inn í Úrvalsvísitöluna um síðustu áramót og Síldarvinnslan hefur verið hluti af vísitölunni undanfarin tvö ár.
Úrvalsvísitalan er samsett af stærstu félögunum og þeim sem mest viðskipti eru með á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland. Endurskoðun á sér stað tvisvar á ári og tekur ný samsetning vísitölunnar gildi í janúar og júlí ár hvert.
Samsetning Úrvalsvísitölunnar eftir uppfærsluna
Alvotech |
Amaroq Minerals |
Arion banki |
Eimskip |
Festi |
Hagar |
Heimar |
Icelandair |
Islandsbanki |
JBT Marel |
Kvika banki |
Oculis |
Reitir fasteignafélag |
Sjóvá |
Skagi |