Eimskip hefur samið um sölu á skipinu Lagarfoss, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Félagið segir ákvörðunina m.a. byggja á hagstæðum aðstæðum á endursölumarkaði skipa og mótun siglingakerfisins.

„[Mótun siglingakerfisins hefur] verið til skoðunar undanfarna mánuði, sér í lagi eftir tilkynningu PCC Bakka um tímabundna stöðvun á starfsemi. Flutningar fyrir PCC Bakka hafa verið burðarásinn í sérhæfðum strandsiglingum félagsins á Íslandi.“

Kís­il­verið á Bakka til­kynnti í maí um tíma­bundna rekstr­ar­stöðvun frá miðjum júlímánuði. Viðskiptablaðið fjallaði ítarlega um stöðu kísilversins á dögunum. Þar kom m.a. fram að kísilverinu verði lokað tímabundið í kringum 20. júlí.

Hálfs milljarðs sölutap

Lagarfoss var smíðaður árið 2014 í Kína og hannaður sérstaklega fyrir flutningsleiðir Eimskips. Lagarfoss hefur þjónað félaginu í rúman áratug og gengt mikilvægu hlutverki í rekstri þess, að því er segir í tilkynningunni.

Þar sem bókfært verð skipsins er hærra en sem nemur söluverði mun Eimskip færa sölutap að fjárhæð 3,4 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 485 milljónum króna, á þriðja ársfjórðungi 2025.

Kaupandi Lagarfoss er portúgalska flutninga- og hafnarrekstrarfyrirtækið Grupo Sousa, sem er með aðsetur á Madeira. Grupo Sousa rekur skipafélagið GS Lines sem sinnir reglulegum vöruflutningum á milli Portúgals og Azore eyja, Madeira, Canary eyja, Grænhöfðaeyja og Gínea-Bissá í Afríku með sex skipum.

Gert er ráð fyrir að afhenda skipið í Reykjavík á tímabilinu ágúst til september, en salan er háð hefðbundnum fyrirvörum um kaup og sölu skipa.

Fækkar um eitt skip í flota Eimskips

Við söluna á Lagarfossi mun, að minnsta kosti tímabundið, fækka um eitt skip í rekstri Eimskips. Eimskip segir vonir standa til að hægt verði að bjóða áhöfn Lagarfoss starf á öðrum skipum félagsins.

„Samhliða afhendingu á skipinu munu verða breytingar á sérhæfðum strandsiglingum félagsins á Íslandi. Markmið félagsins mun eftir sem áður vera að þjónusta landsbyggðina með framúrskarandi hætti en umfang sjóflutninga mun óhjákvæmilega minnka. Viðskiptavinir verða upplýstir um breytingar á þjónustu þegar nær dregur og þær liggja fyrir.

Með ofangreindum aðgerðum og breytingum á siglingakerfi félagsins, sem nú eru til skoðunar, er það mat félagsins á þessum tímapunkti að rekstrarleg áhrif væntra breytinga séu jákvæð til skemmri tíma.“