Verslun Eirbergs í Kringlunni skemmdist í brunanum þann 15. júní sl. og hefur verið lokuð síðan þá. Eirberg hefur ákveðið að loka verslun sinni í Kringlunni fyrir fullt og allt og halda áfram á nýrri braut, að því er segir í fréttatilkynningu
Verslun Eirbergs í Kringlunni skemmdist í brunanum þann 15. júní sl. og hefur verið lokuð síðan þá. Eirberg hefur ákveðið að loka verslun sinni í Kringlunni fyrir fullt og allt og halda áfram á nýrri braut, að því er segir í fréttatilkynningu
„Bruninn var auðvitað mikið áfall, við höfum jú átt farsælan rekstur í Kringlunni í 10 ár og áttum þar yndislegan tíma með rekstraraðilum, verslunareigendum og viðskiptavinum,“ segir Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirbergs.
„Við vissum það að verslunin í Kringlunni yrði ekki starfhæf í lengri tíma en í stað þess að leggja árar í bát lögðum við upp með að horfa frekar á stöðuna sem tækifæri til þess að stokka aðeins upp hjá okkur og bæta þjónustustig í verslun okkar á Stórhöfða 25.“
Viðskipti jukust eftir lokun í Kringlunni
Fyrirtækið segir lokunina þó ekki hafa haft jafn slæm áhrif á fyrirtækið og reiknað var með. Raunar hafi velta Eirbergs aukist á þeim tíma sem liðinn er frá lokuninni.
„Við færðum starfsfólk úr Kringlunni yfir í verslun okkar að Stórhöfða, sem við reyndar þrefölduðum að stærð fyrir nokkru síðan, og jukum enn við þjónustustigið í verslun og í vefverslun. Það kom á daginn — sem við vonuðumst reyndar til — að aðstæður höfðu ekki teljandi áhrif á viðskiptavini okkar, og raunar fór svo að veltan jókst.“
Eirberg var stofnað í lok árs 2000 þegar Heilbrigðisvörudeild Ó. Johnson & Kaaber og Hjálpartækjabanki Össurar runnu saman í eitt fyrirtæki sem ætlað var að sækja fram á heilbrigðissviði og útvíkka sameinaða starfsemi með auknu vöruframboði. Um 30 manns starfa hjá fyrirtækinu.“
„Eirberg hefur þróast frá því að vera miðstöð hjálpartækja yfir í framsækið fyrirtæki sem nýtur aukinna vinsælda með vandaðar vörur til heilsueflingar og bættra lífsgæða.“
Bjóða 5 þúsund króna afslátt í vikunni
Dagana 2.–7. október hyggst Eirberg bjóða öllum sem koma í verslunina að Stórhöfða 25, 5.000 króna afslátt þegar verslað er fyrir 10.000 krónur eða meira.
„Með þessu viljum þakka okkar viðskiptavinum sem hafa staðið með okkur í þessum miklu breytingum og þá sér í lagi okkar viðskiptavinum úr Kringlunni sem hafa lagt leið sína í verslun okkar að Stórhöfða“ segir Kristinn.