Björgólfur Thor Björgólfs­son hefur sent Ríkisút­varpinu form­lega beiðni um leiðréttingu „á rang­færslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafa síðan verið endur­teknar í öðrum miðlum.“

Sam­hliða því sendi hann al­menna áréttingu til fjölmiðla um þessi at­riði og „aðrar rangar ályktanir sem hafa verið dregnar af þessari um­fjöllun.“

Björgólfur neitaði því í byrjun mánaðar að hafa séð eða nýtt sér gögn sem komu frá njósna­fyrir­tækinu PPP.

Hann segir það hafa komið sér í opna skjöldu að sjá í þætti Kveiks hversu langt starfs­menn PPP gengu í tengslum við þessar rannsóknir. Upp­tökur hafi aldrei verið af­hentar sér né starfs­fólki hans „og voru því aldrei nýttar af okkur á nokkurn hátt“.

Í yfir­lýsingu í morgun áréttar hann ábendingar sínar um um­fjöllunina og óskar eftir því að leiðrétta rang­færslur. Þar segir hann að starfsað­ferðir PPP voru ekki í samræmi við verk­samning og að hann hefði aldrei samþykkt þessi vinnu­brögð hefði þau verið honum ljós. „Það er því ekki hægt að full­yrða að njósnað hafi verið að mínu undir­lagi,“ segir Björgólfur.

„Ég vík mér ekki undan mál­efna­legri og gagn­rýninni um­fjöllun. Það er sjálf­sagt og eðli­legt að fjölmiðlar spyrji spurninga og ég svara þeim þegar stað­reyndir liggja fyrir. Hins vegar er langt til seilst þegar ég er tengdur við skipu­lagða njósna­starf­semi og gagna­leka úr stjórn­kerfinu, þar sem geymslu, að­gangi og með­ferð viðkvæmra persónu­upp­lýsinga og rannsóknar­gagna hefur aug­ljós­lega verið ábóta­vant,“ skrifar Björgólfur.

Hægt er að lesa yfir­lýsingu Björgólfs í heild sinni hér að neðan:

Árétting til fjölmiðla vegna endurtekinna rangfærslna

Ég hef í dag sent Ríkisútvarpinu formlega beiðni um leiðréttingu á rangfærslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafa síðan verið endurteknar í öðrum miðlum. Í því ljósi tel ég ástæðu til að senda samhliða almenna áréttingu til fjölmiðla um þessi atriði og aðrar rangar ályktanir sem hafa verið dregnar af þessari umfjöllun.

Greiddi einn reikning
Samkvæmt bókhaldsgögnum voru rúmar 8 milljónir króna greiddar til PPP en ekki 33 milljónir króna eins og ítrekað hefur verið haldið fram á Rúv og í kjölfarið í öðrum miðlum. Mögulega bárust frekari reikningar frá fyrirtækinu en þeir voru ekki greiddir enda lauk verkkaupum þegar engin niðurstaða fékkst.

Umfangið ýkt
Þá kom fram að njósnað hefði verið um „fjölda fólks“ og að aðgerðirnar hefðu kostað „tugi milljóna króna“. Í þættinum eru þó aðeins fjórir einstaklingar nafngreindir og samkvæmt gögnum voru greiddar rúmar 8 milljónir króna fyrir verkið. Fullyrðingarnar standast því ekki.

Engin hópmálsókn byrjuð
Það er ekki rétt að búið hafi verið að stefna mér í hópmálsókn árið 2012 eins og fram kom í Kveik. Hópmálsóknarfélagið var ekki stofnað fyrr en þremur árum síðar, eða 19. júní 2015. Gögn um það voru móttekin þann 17. ágúst 2015 og stefna fyrst birt 12. ágúst 2015.

Misvísandi myndefni
Því tengdu er í þættinum birt myndefni sem sýnir mig yfirgefa réttarsal, samhliða umfjöllun um hópmálsókn. Þetta myndefni tengist allt öðrum réttarhöldum þar sem ég var vitni. Ég steig aldrei fæti inn í réttarsal vegna hópmálsóknarinnar. Myndefnið er því misvísandi og ærumeiðandi, ætlað að skapa þau hugrenningatengsl hjá áhorfendum að ég hafi þurft að verja mig gegn hópmálsókn í réttarsal.

Hvorki keypti né sá gögn
Ég hvorki keypti né sá nokkur gögn sem áttu uppruna sinn hjá embætti sérstaks saksóknara. Ég hafði því enga aðkomu að gagnalekamálinu sem vísað er til. Lögmenn Landslaga tóku við gögnum frá PPP úr hirslum embættisins, borguðu um 30 milljónir króna fyrir samkvæmt fréttum og lögðu fram á vegum þrotabús Milestone. Síðar ræddu lögmenn Landslaga við PPP-menn um að fá fleiri gögn við undirbúning hópmálsóknar gegn mér. Það voru því aðrir sem höndluðu með þessi gögn en ég.

Aldrei sakborningur
Þá hefur því verið haldið fram að ég hafi verið sakborningur í rannsókn yfirvalda á þessum tíma. Það er rangt. Ég hef aldrei verið sakborningur og engin ástæða hefur verið talin til aðgerða gegn mér. Mál mín hafa verið rannsökuð af þar til bærum stofnunum og þeim lokið án athugasemda.

Njósnir ekki að mínu undirlagi

Þá kom það mér í opna skjöldu að sjá í Kveiksþættinum hversu langt starfsmenn PPP gengu í tengslum við þessar rannsóknir. Upptökur voru aldrei afhentar mér né starfsfólki mínu og voru því aldrei nýttar af okkur á nokkurn hátt. Starfsaðferðirnar voru ekki í samræmi við verksamning og ég hefði aldrei samþykkt þessi vinnubrögð hefði mér verið þau ljós. Það er því ekki hægt að fullyrða að njósnað hafi verið að mínu undirlagi.

Ég vík mér ekki undan málefnalegri og gagnrýninni umfjöllun. Það er sjálfsagt og eðlilegt að fjölmiðlar spyrji spurninga, og ég svara þeim þegar staðreyndir liggja fyrir. Hins vegar er langt til seilst þegar ég er tengdur við skipulagða njósnastarfsemi og gagnaleka úr stjórnkerfinu, þar sem geymsla, aðgangur og meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga og rannsóknargagna hefur augljóslega verið ábótavant.

Það skiptir miklu máli að slík mál séu rædd af ábyrgð og á grundvelli staðreynda. Traust á opinberri umræðu og mikilvægi frjálsra fjölmiðla byggir á því að upplýsingagjöf sé nákvæm, sanngjörn og í samræmi við raunveruleikann. Ég treysti því að fjölmiðlar meti þessi atriði af fagmennsku og virðingu fyrir hlutverki sínu.