Fjármagn streymdi inn í hlutabréfasjóði fjórða mánuðinn í röð í desember. Nettó innflæði í hlutabréfasjóði nam tæplega 1,6 milljörðum króna í síðasta mánuði og hefur það ekki verið meira síðan í janúar 2024, samkvæmt tölum Seðlabankans.
Þá var einnig nettó innflæði í blandaða sjóði, þ.e. sem fjárfesta bæði í hlutabréfum og skuldabréfum, að fjárhæð 687 milljónir króna í desember. Innflæði í blandaða sjóði hefur ekki verið meira síðan í júní síðastliðnum.
Þá var nettó útflæði úr skuldabréfasjóðum upp á 300 milljónir króna í síðasta mánuði, eftir talsvert innflæði í september til nóvember.
Eignir verðbréfasjóða námu 155,7 milljörðum króna í lok síðasta árs, samanborið við 153,8 milljarða í árslok 2023.