Óskar Magnússon, stjórnarformaður Eimskips, segir að sér þætti gaman ef umræður við stærstu hluthafa, ekki síst lífeyrissjóði, myndu snúast meira um rekstur flutningafélagsins heldur en um ýmsar reglur, t.d. þegar kemur að stjórnarháttum.
Í pallborðsumræðum á málstofu Landssambands lífeyrissjóða (LL) um samskipti fjárfesta og stjórna á þriðjudaginn nefndi Óskar að einn lífeyrissjóður sé búinn að skrifa skráðum félögum bréf til að hvetja þau til að birta upplýsingar um einstaklinga sem bjóða sig fram til stjórnar en eru ekki hluti af uppstillingu tilnefningarnefndar.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE), næst stærsti lífeyrissjóður landsins, birti umrætt bréf á heimasíðu sinni í gær.
„Þetta er bara þungt mál, það er bara búið að senda þetta á öll skráð félög,“ sagði Óskar og bætti við að hann hefði svarað bréfinu fyrir hönd Eimskips.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði