Fjármálaráðuneytið hefur svarað áhyggjum Vegagerðarinnar vegna áformaðs hlutverks stofnunarinnar við álestur akstursæla vegna kílómetragjaldsins í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Ráðuneytið segir þar að stofnunin hafi verið upplýst um fyrirkomulagið ólíkt því sem kemur fram í umsögn Vegagerðarinnar, sem forstjórinn Bergþóra Þorkelsdóttir undirritaði, en þar sagði stofnunin að ráðuneytið hafi ekki haft samráð við stofnunina.

Viðskiptablaðið fjallaði um ofangreinda umsögn í vikunni en í henni furðaði Vegagerðin sig á því að til stæði að fela henni það hlutverk, ásamt tollayfirvöldum og faggiltum skoðunarstöðvum ökutækja, að vera álestraraðili sem skráir stöðu akstursmælis tiltekinna gjaldskyldra ökutækja. Raunar taldi Vegagerðin að um mistök í frumvarpinu væri að ræða.

Fjármálaráðuneytið segir að ekki sé gert ráð fyrir auknu hlutverki Vegagerðarinnar í því frumvarpinu, umfram það sem gildandi lög um olíugjald og kílómetragjald kveða á um.

„Í hlutverkinu felst álestur í undantekningartilvikum eingöngu vegna þungra ökutækja, til hagræðis ef langt er á næstu skoðunarstöð.“

Þá feli frumvarpið í sér minna umfang vegna skráningar en nú er, en þar er eingöngu gert ráð fyrir einum álestri á skoðunarstofu og síðan skráningu á Ísland.is, vegna þungra ökutækja í stað tveggja álestra áður hjá álestraraðila.

„Í þessu ljósi var ekki talin þörf á sérstöku samráði við Vegagerðina, þar sem hlutverk stofnunarinnar er í raun það sama í frumvarpinu um kílómetragjald og í núgildandi lögum um olíugjald og kílómetragjald, þ.e. að getað aðstoðað eigendur þungra ökutækja með skráningu þegar langt er til næstu skoðunarstöðvar, t.d. samhliða vegaeftirliti.“

Fjármálaráðuneytið segir að verkefnastofa um samgöngugjöld hafi kynnt fyrirkomulag vegna gjaldþyngdar ökutækja fyrir Vegagerðinni, Samgöngustofu og Skattinum, þar sem m.a. hafi verið komið inn á þá undantekningu að Vegagerðin geti lesið af akstursmælum þungra ökutækja.