Eftir fimm ára hlé hafa KLAK - Icelandic Startups og Ferðaklasinn í samstarfi við bakhjarla ákveðið að endurvekja Startup Tourism, viðskiptahraðal fyrir frumkvöðla í ferðaþjónustu.

Í tilkynningu segir að með endurkomu hraðalsins vonist samstarfsaðilar til að skapa ný tækifæri innan íslenskrar ferðaþjónustu.

Bakhjarlar hraðalsins komu saman í Grósku í dag til að undirrita samstarfssamning um hraðalinn en styrktaraðilar hraðalsins eru Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Berjaya Iceland Hotels, Icelandair, N1 og Icelandia, auk þess sem Íslandsstofa kemur að verkefninu sem samstarfsaðili.

„Í nýrri ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 er lögð áhersla á öfluga nýsköpun og vöruþróun. Það er mikil gróska og hugmyndaauðgi í íslenskri ferðaþjónustu, allt frá snjöllum tæknilausnum til fjölbreyttrar afþreyingar og nýrrar upplifunar. Með þátttöku í Startup Tourism fá aðilar stuðning og hvatningu til að koma slíkum verkefnum af stað hratt og örugglega,” segir Lilja Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra.

Hraðallinn, sem var keyrður fjórum sinnum á árunum 2016-2019, skilaði miklum árangri fyrir íslenska ferðaþjónustu en 15 af þeim 39 sprotafyrirtækjum sem tóku þátt eru enn starfandi í dag.

Markmið verkefnisins er að hvetja til nýsköpunar og tæknivæðingar í greininni, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðs vegar um landið.

„Við erum afar stolt af því að sjá Startup Tourism vakna af dvala og árangurinn talar sínu máli. Við erum viss um að með nýsköpun sé hægt að auka samkeppnishæfni Íslands sem áfangastaðar enn frekar,” segir Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK.