Samkomulag hefur tekist milli eigenda Enex um uppskiptingu félagsins. Uppskiptingin hefur verið staðfest á hluthafafundi í félaginu og af stjórnum stærstu eigendanna, Reykjavik Energy Invest (REI), dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Geysis Green Energy.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Enex en félagið hefur verið í eigu Geysis að 70% og REI að 26,5%. Þá hefur nokkur fjöldi aðila átt smærri hlut í Enex.
Í tilkynningunni kemur fram að með samkomulaginu eykur Geysir Green Energy hlut sinn í félaginu Enex Kína en það vinnur að uppbyggingu hitaveitna í Kína. Geysir Green Energy er nú 75% hluthafi í Enex Kína og REI 25%.
Þá yfirtekur Geysir Green Energy að fullu verkefni Enex í Þýskalandi og verður þannig leiðandi aðili í þróun jarðvarmaverkefna í Þýskalandi í gegnum verkefnafélag Enex þar í landi og dótturfélag sitt Exorku.
Þá kemur fram að REI yfirtekur eignarhlut Enex í Iceland America Energy, sem unnið hefur að þróun verkefna á sviði jarðhita, fyrst og fremst í Kaliforníu.
„Geysir mun áfram starfa af krafti í Bandaríkjunum þar sem félagið er leiðandi fjárfestir í tveim öðrum jarðhitafélögum,“ segir í tilkynningunni.
Auk ofangreindra verkefna Enex, hafa REI og Geysir Green Energy unnið saman að verkefnum á Filippseyjum í félaginu Envent. Með samkomulaginu mun Geysir Green Energy eignast meirihluta í því félagi (80%) og tekur jafnframt við stjórn þess.
„Við viljum einbeita okkur að verkefnum þar sem við höfum leiðandi hlutverki að gegna líkt og við erum að gera með verkefnunum í Kína og á Filippseyjum,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geysis Green Energy í tilkynningunni.
„Um leið hverfum við frá öðrum sem ekki falla eins vel að starfsemi félagsins. Jafnframt gefur samkomulagið okkur tækifæri til hagræðingar. Þannig sjáum við mikla samlegð með jarðvarmaverkefnum Enex og Exorku í Þýskalandi. Mestu skiptir að taka forystu þar sem hennar er þörf,“ segir Ásgeir.