Vetnisfyrirtækið Green Hydrogen Systems, sem áður þótti vonarstjarna í orkuumbreytingu Evrópu, er orðið gjaldþrota.
Fyrirtækið, sem þróaði rafgreiningartæki til vetnisframleiðslu og var skráð á kauphöllina í Kaupmannahöfn árið 2021, óskaði eftir gjaldþrotavernd í gærkvöldi en Børsen greinir frá.
Þrátt fyrir að hluti starfseminnar verði færður yfir til þýska iðnaðarrisans Thyssenkrupp Nucera segir í tilkynningu félagsins að hluthafar megi ekki búast við neinum greiðslum eða arðgreiðslum.
Þetta markar endalok á ferli sem hófst með miklum vonum. Við skráningu á markað var Green Hydrogen Systems metið á þrjá milljarða danskra króna og safnaði 1,25 milljörðum danskra króna frá fjárfestum, meðal annars frá ATP, AP Møller Holding og Norlys. Samsvarar það um 24 milljörðum íslenskra króna á gengi dagsins.
Hlutabréfin voru þá seld á 40 krónur hvert, en í gær var gengi þeirra aðeins 0,41 króna, sem jafngildir 99 prósenta virðisrýrnun.
Endurspeglar breyttan veruleika
Forsvarsmenn Green Hydrogen Systems höfðu gert ráð fyrir að velta félagsins næði einum milljarði danskra króna fyrir árið 2025. Sú spá varð aldrei að veruleika.
Í staðinn kom fram að fyrirtækið hefði átt í langvarandi fjárhagsvanda, tæknilegum erfiðleikum og hönnunarvanda.

Stuttu fyrir jól fékk félagið neyðarlán að upphæð 80 milljónir danskra króna frá ATP og AP Møller Holding, með það að markmiði að halda rekstri gangandi fram í mars og undirbúa hlutafjárútboð til að safna allt að 300 milljónum danskra króna. Sú áætlun mistókst og gjaldþrot varð niðurstaðan.
Skellur fyrir fjárfesta og lánadrottna
Fjöldi fjárfesta og þjónustuaðila situr nú eftir með tapaðar kröfur. Meðal þeirra er eignastýringarfyrirtækið HC Andersen Capital, sem annaðist upplýsingamiðlun og gerð ársreiknings fyrir Green Hydrogen Systems.
Forstjóri félagsins, Tue Østergaard, lýsti stöðunni sem mjög óheppilegri og sagði að fyrirtækið hefði þurft að afskrifa ógreidda þjónustu.
„Við komumst yfir þetta, en þetta er bagalegt. Bæði fyrir okkur, aðra lánadrottna og fyrir félagið sjálft,“ segir Østergaard við Børsen.
Gjaldþrot Green Hydrogen Systems bætist í sívaxandi hóp grænna nýsköpunarfyrirtækja sem hafa farið illa undanfarið. Í þeirra hópi eru meðal annars Better Energy, Blue World Technologies og sænski rafhlöðuframleiðandinn Northvolt.
Þá hefur fyrirtækið Re-Match, sem framleiðir endurunna gervigrasvelli, einnig orðið gjaldþrota ásamt öllum dótturfélögum sínum.
Svipað og með Green Hydrogen Systems hafði Re-Match verið skráð á vaxtarmarkaðinn First North árið 2021 með aðkomu sjóðsins Nordic Alpha Partners, en var síðar afskráð og endaði í rekstrarendurskipulagningu.
Afleiðing vanþróaðs markaðar
Troels Ranis, forstöðumaður orkusviðs dönsku iðnaðarsamtakanna DI Energi, sagði að gjaldþrot Green Hydrogen Systems væri mikið áfall fyrir alla sem vinna að þróun vetnistækni.
„Þetta endurspeglar þann vanda að markaðurinn fyrir vetnistækni hefur ekki þróast eins hratt og vonir stóðu til. Áformin hafa ekki ræst og nú sjáum við afleiðingarnar,“ sagði hann í skriflegri yfirlýsingu.