Síminn mun selja Sýn+ Sport Ísland og Sýn+ Allt Sport ásamt því að dreifa sjónvarpsstöðinni Sýn í gegnum myndlykla og sjónvarpsöpp Símans. Þetta kemur fram í tölvupósti frá Símanum til viðskiptavina sinna.
„Viðskiptavinir geta þar með keypt áskriftir beint af Símanum og horft á hágæða íþróttaefni á borð við Ensku úrvalsdeildina, Meistaradeild Evrópu, Formúluna og stærstu mótaraðirnar í golfi. Enska úrvalsdeildin sem hefst á ný 15. ágúst verður aðgengileg með áskrift að SÝN+ Allt Sport. Jafnframt verður sjónvarpsstöðin SÝN, áður Stöð 2, í opinni dagskrá á myndlyklum og sjónvarpsöppum Símans frá og með 1. ágúst, þar sem hægt er að horfa á fréttir Sýnar ásamt öðru efni. Efnisveitan SÝN+ verður aftur á móti hvorki aðgengileg í viðmóti Símans né hluti af þeim áskriftarpökkum sem Síminn selur,“ segir í tölvupóstinum.
Sýn+ Allt Sport kostar 8.990 krónur á mánuði og Sýn+ Sport Ísland 5.990 krónur á mánuði. Til samanburðar kostar ódýrasta áskriftarleið sem stendur til boða hjá Sýn 11.990 krónur á mánuði.