Konungríkið Sádi-Arabía stendur frammi fyrir erfiðum fjárhagslegum ákvörðunum á næstunni en samkvæmt The Wall Street Journal heldur skuldsetning ríkisins áfram að aukast þrátt fyrir gríðarlegar tekjur.
Sádarnir sóttu sér nýverið 11,2 milljarða Bandaríkjadali með hlutafjárútboði í krúnudjásni konungsríkisins, Saudi Aramco.
Samhliða því seldi þjóðarsjóður Sáda hlutabréf í bandarískum fyrirtækjum fyrir um 15 milljarða dali en konungríkið er að dæla peningum í draumsýn krónprinsins Mohammed bin Salman, Vision 2030.
Verkefnið snýr að því að auka fjölbreytni í efnahag landsins en um er að ræða mikið af afar framsæknum hugmyndum sem eru bæði kostnaðarsamar og verða ekki arðbærar fyrr en eftir áratugi.

Ásættanlegur halli
Mohammed al-Jadaan fjármálaráðherra Sádi Arabíu sagði nýverið að halli ríkissjóðs, sem er um 2% af landsframleiðslu, væri ásættanlegur eins og staðan er núna.
„Svo lengi sem hallinn sé tilkominn vegna framsækinna verkefna, þá held ég þetta sé jákvætt,“ sagði Mohammed al-Jadaan í viðtali við CNBC á dögunum.
Hins vegar er Saudi Aramco ekki sama peningavélin og áður fyrir konungsfjölskylduna.
Upphaflega stóð til að selja hluti fyrir um 40 til 50 milljarða dali í olíufyrirtækinu í ár en á endanum ákvað fjölskyldan að selja 0,64% hlut á 11,2 milljarða.
Markaðsvirði 97% hlutar konungsfjölskyldunnar er metinn á 1,8 billjónir (e. trillion) dali en þar sem félagið er skráð í kauphöllina í Sádi-Arabíu hefur gengið illa að fá stóra fjárfestingasjóði til að fjárfesta í því.
Stærð Vision 2030 er þó það sem flestir eru sagðir hræðast en draumsýn MBS er langt frá því að vera ódýr.
Í fyrra lagði Þjóðarsjóður Sáda hinni svokölluðu Línuborg til 48 milljarða dala, fjárfesti 100 milljörðum í örflögutækni og stofnaði nýtt flugfélag, Riyadh Air, svo dæmi séu tekin.
Þjóðarsjóðurinn hefur einnig komið að fjármögnun ýmissa íþróttaverkefna í landinu eins og sameiningu LIVE Golf og PGA-mótaraðarinnar samhliða því að borga himinhátt kaup knattspyrnumanna í sádiarabísku úrvalsdeildinni.
Sjóðurinn greiddi einnig 35 milljarða dala fyrir nýjar flugvélar frá Boeing og þá er á döfinni að fjárfesta í rafíþróttum fyrir 38 milljarða dala sem og byrja að framleiða rafbíla.
Eignastaða Þjóðarsjóðs Sáda féll um 80% frá árslokum 2020 og út þriðja ársfjórðung þessa árs.
Samkvæmt sérfræðingum sem The Wall Street Journal ræðir þarf sádí-arabíska ríkið að leggja sjóðnum til hundruð milljóna dala á næstunni.