Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi hefur aldrei mælst hærri en í ágúst síðastliðnum og nam hún rúmum 37,9 milljörðum króna. Veltan jókst um tæp 7,3% á milli mánaða en um 56,8% á milli ára. Þetta kemur fram í mánaðarlegri samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV).
Hlutfall erlendrar kortaveltu af heildarkortaveltu á Íslandi var 30,3% í síðasta mánuði sem er sambærilegt hlutfall og í ágúst 2019, þegar það mældist 30,6%. Ferðamenn frá Bandaríkjunum eru ábyrgir fyrir 39% af allri erlendri kortaveltu hérlendis í síðasta mánuði.
Heildar greiðslukortavelta í ágúst nam rúmum 125,2 milljörðum króna og jókst um 23,9% frá fyrra ári. Kortavelta Íslendinga hérlendis nam 87,3 milljörðum og jókst um 13,5% á milli ára.
Innlend kortavelta í verslun nam rúmum 44,8 milljörðum í ágúst sem er 5,33% meira en á sama tíma í fyrra. Innlend kortavelta í þjónustu nam rúmum jókst um rúm 23,7% á milli ára og nam 42,4 milljörðum.
Velta innlendra greiðslukorta í verslunum og þjónustu erlendis nam rúmum 25,4 milljörðum króna í júlí og jókst um 10 milljarða frá fyrra ári. Veltan hefur ekki verið hærri að nafnvirði frá upphafi mælinga árið 1997.