Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Myrkur Games gaf út stiklu af tölvuleiknum Echoes of the End um helgina en stiklan var sýnd á tölvuleikjaráðstefnunni Future Games Show sem haldin var í Los Angeles.

Stiklan sýnir leik sem verður gefinn út af fyrirtækinu í sumar en um er að ræða ævintýraleik þar sem íslenskt landslag spilar lykilhlutverk.

Myrkur Games er sjálfstætt tölvuleikjafyrirtæki sem var stofnað árið 2016 af Halldóri Snæ Kristjánssyni, Friðriki Aðalsteini Friðrikssyni og Daníel Arnari Sigurðssyni og hefur síðan þá vaxið í reynslumikinn hóp nærri 40 framleiðenda.

Hinn umræddi tölvuleikur, Echoes of the End, er sögudrifinn hasar- og ævintýraleikur þar sem Aldís Amah Hamilton og Karl Ágúst Úlfsson fara með aðalhlutverk. Leikurinn verður gefinn út af Deep Silver fyrir PC-tölvur, PlayStation 5 og Xbox Series.

Halldór Snær Kristjánsson, framkvæmdastjóri Myrkur Games, segir í samtali við Viðskiptablaðið að tölvuleikurinn af hafi verið í vinnslu í langan tíma og sé mikil sambland af tækniuppbyggingu og leikjasmíði.

„Að mínu mati erum við búin að vera að sitja á mest spennandi leyndarmáli á Íslandi. Þetta er 15 klukkutíma upplifun í ævintýraheimi sem fær mikinn innblástur frá Íslandi. Hann gerist ekki á Íslandi en hefur svipaða tengingu og Lord of the Rings hefur við Nýja-Sjáland.“

Myndbandið hefur fengið mikið lof fyrir að sýna raunverulega spilun í stiklu.
© Skjáskot (Skjáskot)

Hann segir að framleiðendur hafi skapað nýjung sem hann viti ekki til þess að hafi verið gert áður. „Við erum búin að skanna fjölbreytt landslag, meðal annars Reynisfjöru, Stuðlagil og svo hefur Kirkjufell líka verið skannað í heild sinni. Við skönnuðum líka fjóra kílómetra af Sólheimajökli inn í leikinn.“

Leikurinn verður gefinn út í sumar og munu spilarar stíga þá inn í spor Ryn, öflugrar bardagakonu með tengingu við forna galdra, sem leggur af stað á ferð um brotna veröld til að bjarga bróður sínum og sigrast á vaxandi ógn.