Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að vísa máli gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins þar sem Ísland hefur ekki innleitt fjórar reglugerðir á sviði fjármálaþjónustu í landsrétt en stjórnvöldum bar að innleiða umræddar reglugerðir í landslög fyrir mars 2023.

ESA sendi formlegt áminningarbréf hvað varðar reglugerðirnar til Íslands í maí 2023 og rökstutt álit í febrúar 2024, sem var fylgt eftir með óformlegum samskiptum.
„ESA hefur ekki fengið neinar upplýsingar sem gefa til kynna að reglugerðirnar hafa verið leiddar í landsrétt,“ segir í tilkynningu eftirlitsstofnunnarinnar.
Vísun mála til EFTA-dómstólsins er lokaskrefið í formlegu samningsbrotamáli ESA gegn aðildaríki. EFTA-dómstóllinn mun nú dæma í málunum.
Fram kemur að EES-gerðirnar sem enn á eftir að innleiða nái yfir mismunandi þætti fjármálaþjónustu, þar á meðal áhættustýringarferli, skráningu viðskiptaskrár, stöðustofnunarskyldur og afleiður.
ESA áréttar að hlutverk stofnunarinnar í þessu máli sé að tryggja að samkeppnisskilyrði í fjármálaþjónustu séu sambærileg á öllu EES-svæðinu.