Seðlabanki Evrópu tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að lækka stýrivexti sína um 0,25 prósentur, úr 3,0% í 2,75%. Peningastefnunefnd bankans gaf jafnframt til kynna að von væri á frekari vaxtalækkunum til að styðja við evrópska hagkerfið.

Um er að ræða fimmtu vaxtalækkun evrópska seðlabankans við síðustu sex vaxtaákvarðanir frá því í júní síðastliðnu. Markaðsaðilar gera ráð fyrir tveimur eða þremur vaxtalækkunum til viðbótar í ár, að því er segir í umfjöllun Retuers.

Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, sagði á blaðamannafundi að allir nefndarmenn hefðu stutt tillögu um vaxtalækkun.

Fyrr í dag greindi Eurostat, hagstofa ESB, frá því að landsframleiðsla á evrusvæðinu hefði ekki vaxið á síðasta ársfjórðungi, en hagfræðingar höfðu spáð 0,1% vexti.

Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti í gærkvöldi að hann hefði ákveðið að halda stýrivöxtum sínum óbreyttum á bilinu 4,25% til 4,5%.