Novator Partners, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, er krafið um 12,3 milljónir dollara, um 1,6 milljarð króna af stjórnvöldum í Kólumbíu eftir að hafa dregið til baka hluta af tilboði sínu í uppbyggingu fjarskiptakerfi landsins.
Tilboðið var dregið til baka eftir að Novator bauð fyrir mistök boðið tífalt hærri upphæð en til stóð í hluta fjarskiptakanetsins. Tilboðið hljóðaði upp á um 1.740 milljarða kólumbískra pesóa, jafnvirði um 70 milljarða króna en átti að hljóða upp á 174 milljarða pesóa um sjö milljarða króna.
Ráðuneyti fjarskiptamála í Kólumbíu gaf út á föstudaginn að reglur útboðsins væru skýrar. Félagið ætti að greiða fjárhæðina fyrir að draga tilboðið til baka, í samræmi við reglugerðir. Í frétt Reuters segir að sig um málið segir að Novator hafi ekki enn tjáð sig um úrskurðinn.
Sjá einnig: Fær 42 milljarða og býr til fjarskiptafélag í Kólumbíu
Novator hélt eftir hluta tíðnisviða sem það vann í útboðinu. Novator mun greiða 257 milljónir dollara, um 32 milljarða króna fyrir þann hluta tilboðsins sem það hélt eftir. Fyrir það þarf félagið að sjá fyrir fjarskiptasambandi á 674 stöðum í landinu. Á móti fær Novator að nýta tíðnisviðin sem það vann í útboðinu í tuttugu ár.
Vilja byggja upp nýtt símafélag
Þá stefnir Novator að því að byggja upp nýtt fjarskiptafélag í Kólumbíu líkt og Viðskiptablaðið fjallaði um í janúar. Það yrði þá fjórða landið sem Novator kemur að uppbyggingu símafélags í. Novator byggði síðast upp fjarskiptafélagið WOM í Chile og þar áður Play í Póllandi og Nova á Íslandi. Kólumbískir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir fyrir því að Novator hafi einnig sýnt áhuga á að kaupa kólumbíska hluta fjarskiptafélagsins Telefónica að fullu eða að hluta.
Sjá einnig: Áður sýnt Kólumbíu áhuga
WOM greiddi Novator nýlega 30 milljarða króna í arð. Þá seldi Novator 12 milljarða króna hlut í Play í haust. Til stóð að nýta fjármagnið til frekari fjárfestinga.