Samanlagt jókst innlend kortavelta í febrúar sl. um 10% milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag. Er þetta annan mánuðinn í röð sem aukningin mælist 10%. Alls nam velta tengd verslun og þjónustu innanlands 66 milljörðum króna og dróst saman um 1% milli ára á föstu verðlagi. Kortavelta Íslendinga erlendis nam 15,5 milljörðum króna og tvöfaldaðist milli ára miðað við fast gengi. Þetta er í fyrsta sinn síðan í október 2020 sem samdráttur mælist í neyslu Íslendinga innanlands. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans .

„Líkt og sést hefur á síðustu mánuðum er breyting að verða á vexti neyslunnar sem orsakast nú alfarið af aukningu í neyslu hjá erlendum söluaðilum. Neysla Íslendinga innanlands mælist engu að síður sterk, eða 5% meiri en í febrúar 2020, þrátt fyrir lítilsháttar samdrátt nú milli ára," segir m.a. í Hagsjánni.

Brottfarir Íslendinga í gegnum Leifsstöð hafi verið tífalt fleiri en í febrúar í fyrra, eða 28 þúsund talsins. Því komi ekki á óvart að sjá kortanotkun Íslendinga erlendis aukast verulega. „Aukningin (tvöföldun milli ára) er þó lítil miðað við aukninguna í ferðalögum. Þetta skýrist af því að netverslun færist sífellt í aukana og gerði það að verkum að neysla frá útlöndum datt aldrei niður, þrátt fyrir nær engin ferðalög þegar faraldurinn stóð sem hæst."