Tern Systems hefur hlotið styrk að upphæð 637.000 evrur úr SESAR rannsóknar- og nýsköpunarsjóðnum, sem er hluti af Horizon styrkjasjóði Evrópusambandsins.

SESAR (Single European Sky ATM Research) verkefnið miðar að því að nútímavæða og samræma flugumferðarstjórnunarkerfi (ATM) um alla Evrópu og er ætlað að takast á við áskoranir sem fylgja aukinni flugumferð, með því að þróa nýstárlega tækni og ferla fyrir skilvirkari og sjálfbærari flugsamgöngur.

Tern Systems hlýtur styrkinn til rannsókna og þróunar á sviði gervigreindar en markmið rannsóknarverkefnisins er að þróa gervigreindarlausn til að auka öryggi stjórnunar á flugumferð. Verkefnið sem hlotið hefur nafnið AWARE.

Samstarfsaðilar Tern Systems í rannsóknarverkefninu eru Háskólinn í Zagreb, Alþjóðasamband samtaka flugumferðarstjóra (IFATCA), Sænska flugleiðsögu­þjónustan (LFV), SLOT Consulting frá Ungverjalandi, úkraínska flugleiðsögu­þjónustan (UkSATSE), Tækniháskólinn í Madríd, Háskólinn í Linz og Tækniháskólinn í Zurich.

„Það er mikið ánægjuefni og viðurkenning fyrir okkur hjá Tern Systems að hljóta þennan styrk úr SESAR rannsóknar- og nýsköpunarsjóðnum. Stefna Tern Systems er að stuðla að öryggi og hagkvæmni í flugumferðarstjórn með framsýni og nýsköpun að leiðarljósi og mun styrkurinn gera okkur kleift að setja enn meiri kraft í rannsóknar og þróunarstarf fyrirtækisins,” segir Magnús Már Þórðarson framkvæmdastjóri Tern Systems.