Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Heima fasteignafélags á Grósku ehf., sem á samnefnda fasteignin að Bjargargötu 1, og Gróðurhússins ehf., sem rekur sprotasetur og vinnurými í fasteigninni.
Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt um að það telji hvorki forsendur til íhlutunar né frekari rannsóknar vegna kaupanna. Í tilkynningu Heima til Kauphallarinnar kemur fram að unnið sé að frágangi viðskiptanna.
Gengið var frá samkomulagi um viðskiptin í byrjun febrúar sl. Heildarvirði viðskiptanna var metið á 13,85 milljarða króna og innifelur það virði fasteignarinnar og Gróðurhússins. Fyrirhugað er að kaupverðið muni greiðast að öllu leyti með útgáfu og afhendingu 258 milljón nýrra hluta, eða um 12,7% eignarhlutar í Heimum.
Heimar gera ráð fyrir því að afhending 258 milljón nýrra hluta í Heimum fari fram á næstu vikum. Miðað við dagslokagengi Heima í dag nemur markaðsvirði eignarhlutarins 9,9 milljörðum króna.
Aðaleigendur Grósku eru Björgólfur Thor Björgólfsson, Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson sem unnu saman hjá fjárfestingarfélaginu Novator Partners sem Björgólfur fór fyrir.
Birgir Már Ragnarsson, stjórnarformaður Grósku og meðeigandi Omega, sagði í tilkynningu Heima í febrúar að þeir séu að koma inn sem langtímafjárfestar í fyrirtækið.
„Við teljum að reynsla okkar, sambönd og þekking muni hjálpa þeim áformum og hlökkum til samstarfsins.“