Í maí 2025 flutti Icelandair 448 þúsund farþega sem er 13% aukning miðað við maí á síðasta ári. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt rúmlega 1,6 milljónir farþega.
Flugfélagið segir í tilkynningu til Kauphallarinnar að eftirspurn á markaðnum til Íslands hafi verið góð í mánuðinum og fjölgaði farþegum um 18%. Í mánuðinum voru 29% farþega á leið til Íslands, 16% frá Íslandi, 50% voru tengifarþegar og 5% ferðuðust innanlands.
Sætanýting Icelandair í maímánuði nam 79,6%, samanborið við 79,7% í maí 2024. Stundvísi var 84,1%.
Tekjur á hvern seldan sætiskílómetra (e. yield) lækkuðu um um 2% á milli ára, sem félagið segir að skýrist af lækkun almennra fargjalda á Norður-Atlantshafsmarkaði þar sem mikil samkeppni ríkir.
„Við sjáum áframhaldandi góðar farþegatölur og það er sérlega ánægjulegt að sjá aukninguna á markaðnum til Íslands. Þróunin er í takt við aukna áherslu okkar á arðbærari markaðina til og frá Íslandi. Við höldum áfram að ná framúrskarandi stundvísi sem er að þakka áherslu okkar á skilvirkni í rekstrinum og frábærri frammistöðu starfsfólks félagsins,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 10%. Fraktflutningar jukust um 2% miðað við maí í fyrra. Kolefnislosun minnkaði um 4% á tonnkílómetra.
