Icelandair flutti 552 þúsund farþega í júní 2025, sem er aukning um 7% milli ára. Alls voru 35% farþega á leið til Íslands, 17% frá Íslandi, 44% voru tengifarþegar og 4% ferðuðust innanlands.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að aukningin hafi verið mikil á markaðnum til Íslands, eða um 20%, og markaðnum frá Íslandi, eða um 19%. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt 2,2 milljónir farþega.
„Það er ánægjulegt að sjá markaðinn til Íslands halda áfram að styrkjast og fjölgaði farþegum til landsins um 20% í júní í kjölfar aukinnar áherslu okkar á markaðina til og frá Íslandi að undanförnu. Við bættum Gautaborg við sem áfangastað í leiðakerfinu á ný eftir sjö ára hlé og í júní bættist BYKO í hóp samstarfsaðila Saga Club, vildarklúbbs Icelandair. Saga Club er stærsta fríðindakerfi á Íslandi með um 400 þúsund virka félaga og skapar mikið virði fyrir viðskiptavini okkar bæði með söfnun og nýtingu vildarpunkta,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Sætanýting í júní nam 85,1%, samanborið við 83,4% í júní 2024, og var stundvísi 86,8%. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 52% og fraktflutningar jukust um 16%. Kolefnislosun minnkaði um 5% á tonnkílómetra.