Fasteignafyrirtækið Eignasýn býður nú upp á sérstaka þjónustu sem felur í sér að sýna fasteignir sem eru til sölu í myndbandsformi. Heimasíða Eignasýnar fór í loftið í dag en eigendur segja að um sé að ræða nýja upplifun á íslenskum fasteignamarkaði.
Eigendur Eignasýnar eru þeir Alexander Mar og Snæþór Bjarki Jónsson en með þjónustunni vilja þeir hjálpa fólki að selja eignirnar hraðar og á yfirverði.
„Markmiðið er að eignir í sölu dreifist víðar, veki sterkari viðbrögð og fangi fleiri augu. Við viljum marka okkur sérstöðu með því að bjóða upp á hágæða myndbandsupptökur, faglega framsetningu og áhrifaríka miðlun á bæði heimasíðu okkar og á samfélagsmiðlum,“ segir í tilkynningu frá Eignasýn.
Alexander Mar segir í samtali við Viðskiptablaðið að hugmyndin hafi fyrst komið þegar hann hafi sjálfur verið að kaupa eign. Þá hafði kærastan hans sent honum myndband af eigninni í gegnum TikTok.
„Ég fór þá að velta fyrir mér meðalaldri flestra íslenskra fasteignasala, sem eru kannski ekki eins mikið á samfélagsmiðlum og yngri kynslóðin. Seljandi þarf líka yfirleitt að borga um 20-30 þúsund krónur fyrir ljósmyndir og ef hann fengi þann valmöguleika að fá myndbönd líka þá gæti það stóraukið áhorfin.“
Eignasýn selur mismunandi pakka þegar kemur að þjónustunni og inniheldur dýrasti pakkinn meðal annars drónaskot og myndbönd með talsetningu sem ætluð eru heimasíðum og samfélagsmiðlum.
„Við viljum styðja seljendur, fasteignasala og byggingaraðila með betri markaðssetningu. Jafnframt sækjumst við eftir samstarfi við fyrirtæki sem tengjast fasteignum með einum eða öðrum hætti og vilja verða sýnileg í samhengi sem skiptir máli.“
Alexander bætir við að samkvæmt rannsóknum þá sé fólk einnig miklu líklegra til að skoða fasteignir í myndbandsformi þar sem þau sýni mun meira.
„Það er kominn tími til að hrista aðeins upp á fasteignamarkaðinum og prófa nýjar leiðir. Í stað þess að kyrrstæðar ljósmyndir tali fyrir heilar eignir, leggjum við áherslu á að fanga andrúmsloft, flæði og stemningu. Við erum að segja sögur, vekja tilfinningar og lýsa nærumhverfi.“