Nýtt verkjalyf hefur verið samþykkt af bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitinu (FDA) en lyfið er sérstakt að því leytinu til að það er laust allra ópíata. Lyfið súzetrigín, þekkt undir vörumerkinu Journavx, virkar með því að ráðast á sársaukann áður en hann nær til heilans.
Framleiðandi lyfsins, Vertex Pharmaceuticals, segir að lyfið veiti mikinn létti við alvarlegum sársauka án þess að setja sjúkling í hættu við ávanabindandi ópíata.
Verkjastillandi lyfjum er gjarnan skipt í þrjá flokka. Í fyrsta lagi eru ópíöt, eins og morfín og kódeín. Í öðru lagi eru verkjalyf án ópíata, eins og magnýl og parasetamól og svo eru lyf sem hafa aðra verkun en verkjastillandi en eru oft gefin með verkjalyfjum.
Bandaríkin hafa glímt við verklalyfjafíkn í mörg ár en á hverju ári deyja tugþúsundir Bandaríkjamanna af völdum ópíötnotkunar. Bandaríska smitsjúkdómastofnunin CDC sagði að 82 þúsund manns hafi látist af völdum ofskömmtunar ópíata árið 2022.
Ópíöt eru sterkustu verkjastillandi lyfin og oft besta og jafnvel eina leiðin til að meðhöndla verki sem fylgja miklum áverkum og krabbameini á lokastigum. Þau hafa áhrif á heila og miðtaugakerfi og koma þannig í veg fyrir sársauka.
Meðan á ferlinu stendur fær heilinn einnig flóð af dópamíni sem skapar vellíðan. Þetta er það sem gera ópíöt ávanabandi en Vertex áætlar að um 10% sjúklinga sem notast við ópíöt-lyf verði háð þeim.