Þrátt fyrir mikinn kraft í hlutabréfamörkuðum vestanhafs undanfarin misseri hefur gengi hlutabréfa í snyrtivöruframleiðendum lækkað talsvert á sama tíma.

Eins og bent er á í umfjöllun Wall Street Journal er þetta sérstakt því í sögulegu samhengi hafa slík hlutabréf haldið velli á verðbólgutímum líkt og nú eru uppi. Ástæðan fyrir því er að neytendur eru tregir til að breyta áherslum þegar kemur að snyrtivörum óháð hagsveiflum.

Snyrtivöruframleiðendur á borð Estée Lauder hafa lækkað um fjórðung undanfarna þrjá mánuði meðan gengi hlutabréfa Ultra Beauty og Sally Beuty Holdings hafa fallið um 19% annars vegar og 16% hins vegar.

Samkvæmt umfjöllun blaðsins er ástæðurnar raktar til þess að neytendur séu farnir í auknum mæli að velja sér ódýrari snyrtivörur og væntingar um vaxandi eftirspurn frá Kína hafa ekki ræst.