Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, segir að rekstur félagsins á þriðja ársfjórðungi hafi gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir en af þeim sökum hefur félagið hækkað EBITDA-spá sína fyrir árið um 400 milljónir króna.
Afkoma félagsins fyrir árið er nú áætluð á bilinu 12,7 til 13,1 milljarður króna. Samkvæmt nýbirtu árshlutauppgjöri samstæðunnar nam vörusala félagsins 44,2 milljörðum króna og jókst um 6,9 milljarða eða 18,5% milli ára.
Rekstur Lyfju kom inn í samstæðu Festi 1. júlí en án áhrifa Lyfju jókst vörusala Festi á þriðja ársfjórðungi um 6,4% á milli ára.
„Bæting var á öllum sviðum rekstrar með aukningu í heimsóknum, fjölda seldra vara og fjölda seldra lítra milli ára. Framlegðarstig styrktist hjá öllum félögum samstæðunnar og hækkar heilt yfir um 1,5 p.p. milli ára eða 0,7 p.p. án Lyfju sem er sama framlegðarstig og náðist á síðasta ársfjórðungi. Við erum ánægð með niðurstöðuna sem sýnir að þær aðgerðir á kostnaðarhliðinni sem ráðist hefur verið í til að bæta framlegðarstig hafa skilað árangri,” segir Ásta í uppgjöri félagsins.
Framlegð af vöru- og þjónustusölu samstæðunnar nam 10,8 milljörðum g jókst um rúma 2,2 milljarða eða 26,3% á milli ára. Aukningin var 9,6% án áhrifa Lyfju.
Launa- og starfsmannakostnaður nam 4,8 milljörðum króna og jókst um 31,3% milli ára en um 8,8% aukningu er að ræða án áhrifa Lyfju.
EBITDA- fjórðungsins var 4,7 milljarðar og hækkar um 836 milljónir eða 21,4% milli ára en 9,3% án áhrifa Lyfju.
„Lyfja kom inn í rekstur félagsins frá 1. júlí sl. og nam vörusala félagsins 4.549 millj. kr. á fjórðungnum. EBITDA Lyfju nam 473 millj. kr. og hagnaður 186 millj. kr. Allar rekstrarstærðir Festi litast af innkomu Lyfju inn í samstæðuna og gera samanburð milli ára erfiðan,” segir Ásta.
Samstæðan hagnaðist um rúma 2,2 milljarða á fjórðungnum eða 20,6% af framlegð vörusölu, sem er um 416 milljónum meira en árið áður.
Handbært fé frá rekstri nam 4,6 milljörðum eða 42,9% af framlegð, samanborið við 3,4 milljarða árið á undan.
Eigið fé nam 40,4 milljörðum króna í lok fjórðungsins og var eiginfjárhlutfallið 35,7%.