Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust.

Finnbjörn lét nýlega af störfum sem formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var kjörinn í embætti fyrsta varaforseta. Í embætti annars varaforseta var kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs starfsgreinafélags og í embætti þriðja varaforseta var kjörinn Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Engin mótframboð bárust.