Fjallkonan veitingahús ehf. hefur fest kaup á húsalengjunni að Hafnarstræti 1-3 í miðborginni fyrir 900 milljónir króna.

Félagið rekur samnefndan veitingastað í húsalengjunni. Ásamt honum hýsa fasteignirnar veitingastaðinn Sæta svínið og kokteilbarinn Tipsý bar & lounge, en eignarhald staðanna er nátengt.

Fjallkonan veitingahús ehf. er í 90% eigu Sæta svínsins ehf., rekstraraðila samnefnds veitingastaðar. ‏‏Þá er Tipsý Bar ehf. í 72% eigu Fjallkonunnar veitingahúss ehf.

Veitingamennirnir Nuno Alexandre Bentim Servo og Bento Costa Guerreiro eru meðal stærstu hluthafa Sæta svínsins.

Auk þeirra eiga Guðmundur Melberg Loftsson, Ingimundur Valmundsson og Eyvindur Kristjánsson 15% hlut hver í Sæta Svíninu. Þá á Hákon Fannar Hákonarson 10% hlut í Fjallkonunni veitingahúsi.

Eignarhald Fjallkonunnar veitingahúss ehf. samkvæmt Creditinfo.

Seljendur eru félögin Strjúgur ehf. og Hafnarstræti 1 ehf. sem áttu fasteignina til helminga. Strjúgur er í eigu Guðmundar Jónssonar og Tryggva Rúnars Guðmundssonar og Hafnarstræti 1 er í eigu Lofts Ágústssonar og Ingvars Ágústssonar.

Hafn­ar­stræti 1-3 er að stofni til frá 1868, þegar miðhluti þess var reist­ur. Aust­ur­hlut­inn var byggður 1885 og vest­ur­hlut­inn 1907, þegar hús­in þrjú voru felld í eina heild, sam­kvæmt teikn­ing­um Ein­ars Er­lends­son­ar arki­tekts. Húsið var friðað árið 1991.