Matvöruverslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði hagnaðist um 40 milljónir króna árið 2024, samanborið við 7 milljóna hagnað árið 2023. Félagið hyggst ekki greiða út arð vegna síðasta rekstrarárs.
„Rekstur félagsins skilaði óverulegum hagnaði á árinu, svipað og undanfarin ár,“ segir í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi. „Stjórnendur munu áfram leita leiða til að bæta afkomuna með áframhaldandi hagræðingu og aðhaldi í rekstri.“
Stjórnin bendir á að velta félagsins hafi aukist um 115 milljónir króna milli ára og numið 3.862 milljónum króna. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 13 milljónum samanborið við EBIT-tap upp á 9 milljónir árið 2023.
„Miklar verðhækkanir á innkaupsverði vara hafði áhrif á hækkun á útsöluverð á flestum vöruflokkum. Aðgerðir stjórnenda í samstarfi við mikilvægustu birgja og þéttara aðhald í rekstrinum skilaði jákvæðri rekstrarafkomu í fyrsta skipti í nokkur ár,“ segir stjórnin.
„Á árinu 2025 má búast við álíka þrýstingi á vöruverð og kostnaðarliði með takmarkaðri aukningu í veltu á milli ára.“
Eignir Fjarðarkaupa voru bókfærðar á 978 milljónir króna í árslok 2024, en þar af var handbært fé upp á 462 milljónir króna. Eigið fé félagsins nam 263 milljónum króna.
Fjarðarkaup eru í eigu Gísla Þórs, Sveins, Hjördísar og Rósu Sigurbergsbarna. Bræðurnir Gísli og Sveinn stýra versluninni.