Coca-Cola á Íslandi vinnur nú að því að setja upp nýja hátækni framleiðslulínu fyrir plastflöskur í verksmiðju sinni í Reykjavík sem tekur við af yfir 40 ára gömlum tækjum. Heildarfjárfestingin er um 1,2 milljarða króna „og er ein sú stærsta sem lagt hefur verið í hjá fyrirtækinu“, að því er segir í fréttatilkynningu.

Uppsetning framleiðslulínunnar fer fram í þessum mánuði og stefnt er að því að hefja framleiðslu með hinum nýja búnaði í byrjun mars. Á fjórða tug íslenskra verktaka hafa komið að verkefninu auk erlendra sérfræðinga og starfsmanna Coca-Cola á Íslandi.

„Með fjárfestingunni treystir fyrirtækið ekki bara framleiðslu sína hér á landi heldur eykur hún gæði hennar og skilar okkur umhverfisvænni vöru. Kolefnisspor okkar minnkar verulega því nýju tækin nota minni orku, minna vatn og minna af plasti,” segir Kristín Vala Matthíasdóttir, framkvæmdastjóri vörustjórnunarsviðs Coca-Cola á Íslandi, í tilkynningu.

Hlutfall innlendrar framleiðslu í vöruframboði Coca-Cola á Íslandi er um 60% en í verksmiðjum fyrirtækisins í Reykjavík og á Akureyri starfa yfir 100 manns.

Verkefnið hefur verið 2 ár í undirbúningi enda um tæknilega flókið verkefni að ræða sem krefst töluverðar breytingar á húsnæði og skipulagningar til að koma í veg fyrir að vörur skorti á markað hér á landi á meðan skiptin eiga sér stað,” segir Kristín Vala.