Fjölmargir fjár­festar í danska sólar­orku­fyrir­tækinu Obton lýsa því nú að þeir séu fastir með fjár­festingar sínar eftir að danska fjár­mála­eftir­litið (Finanstil­synet) kærði tvö dóttur­félög fyrir­tækisins til lög­reglu, sam­kvæmt Børsen.

Fjár­mála­eftir­litið telur að félögin hafi brotið gegn hags­munum fjár­festa, meðal annars með því að draga út háar fjár­hæðir í duldum gjöldum.

„Ég vil bara komast út úr Obton. En nema ég aug­lýsi fjár­festinguna á Den Blå Avis fyrir 50.000 danskar krónur, þá losna ég ekki við hana,“ segir Martin Hollerup, sem lagði eina milljón danskra króna í sjóð Obton.

Dótturfélag með 5,8 milljarða þóknun

Sjóða­fyrir­komu­lagið hjá Obton virkaði þannig að fjár­festar lögðu fé í af­markaða sjóði sem áttu og ráku sólar­orkugarða. Obton annaðist reksturinn gegn þóknun og fjár­festar áttu að fá reglu­legar arð­greiðslur og mögu­leika á að selja hlut sinn í svo­kölluðum út­göngu­glugga.

Nú hefur fyrir­tækið hins vegar ákveðið að sam­eina alla sjóði í eitt lokað félag, þar sem fjár­festar verða hlut­hafar án tryggðrar fjár­festa­verndar eða út­göngu­leiða.

Í til­teknum sjóði, Impact Fund, greindi eftir­litið frá því að Obton For­valtning, dóttur­félag sam­stæðunnar, hefði dregið til sín tæp­lega 300 milljónir danskra króna í svo­nefnda „óupp­lýsta þóknun“, án vitundar fjár­festa. Samsvarar það um 5,8 milljörðum íslenskra króna.

Fyrir­tækið hafði þegar hlotið áminningu frá eftir­litinu árið 2022 vegna villandi markaðs­setningar og óraun­hæfra spár um af­komu og ávöxtun.

Eftir að greint var opin­ber­lega frá vand­ræðum fyrir­tækisins hefur fjöldi fjár­festa reynt að losa sig við hlut­deild sína, bæði á innri vef Obton og í opnum aug­lýsingum, en eftir­spurnin virðist engin.

Þegar fjár­festar keyptu sig inn í Impact-sjóðinn var þeim lofað ár­legri ávöxtun upp á 17,5%, að því til­skildu að fjár­magnið væri bundið í allt að 30 ár.

Árið 2023 þurfti Obton hins vegar að viður­kenna að út­reikningar fyrir­tækisins hefðu verið rangir, raun­veru­leg ávöxtun væri í reynd 6,6%.

Obton hefur nú til­kynnt um miklar breytingar á starf­semi sinni.

Áður fjár­festu við­skipta­vinir í sjóðum sem áttu og ráku sólar­orkugarða í um­sjá Obton. Nú á að sam­eina alla sjóði í eitt óskráð hluta­félag sem heldur utan um eignar­hald og rekstur sólar- og raf­hlöðugarða í Evrópu og víðar.

Opna fyrir sölu 2027

Þetta felur í sér að fjár­festar, sem áður nutu ákveðinnar verndar og rekstrar­eftir­lits innan sjóða, verða hlut­hafar í lokuðu félagi – án form­legrar verndar eða aðkomu sjálf­stæðra eftir­lit­saðila.

Í kynningargögnum Obton var fjár­festum sér­stak­lega lofað svo­kölluðum „út­göngu­glugga“ þar sem þeir gætu selt hlut sinn aftur til fyrir­tækisins.

Fyrsti slíki glugginn átti að opnast árið 2027. Nú óttast fjár­festar að það lof­orð muni heldur ekki standast.

Obton hefur ekki veitt viðtöl vegna málsins, en í skrif­legri yfir­lýsingu segir að fyrir­tækið vinni að nýrri skipan í sam­starfi við sjóða­stjórnir og hyggist kynna heildar­lausn á næstu misserum. Engin skýrsla hefur þó verið birt um hvernig réttindum fjár­festa verður tryggt í nýrri upp­byggingu.